Thursday, September 15, 2011

Ný list verður til

Í dag fórum við, nemendur í fornámi Myndlistaskólans á sýninguna, "Ný list verður til" á Kjarvalsstöðum. Sýning samanstendur af verkum ýmissa listamanna frá um miðjum 7. áratug síðustu aldar og er ætlað að vekja upp spurningar á borð við "hvað gerist þegar eitt skeið í list víkur fyrir öðru?" og "verða skörp skil þar sem einn straumur hverfur inn í annan eða myndast iður og straumköst?". Í kringum miðjan 7. áratuginn var landslagslistin ekki lengur talin svara kröfum tímans og abstrakt, sem hafði verið ríkjandi í íslenskri myndlist í um 10 ár, var á undanhaldi. Á þessum tíma voru því umskipti í íslenskri list, bæði myndlist, bókmenntum, leiklist og tónlist.


Sýningin er afar fjölbreytt og sýnir þá strauma og stefnur sem voru í gangi á þessum tíma afar vel. Ekki var nein ein stefna ráðandi heldur leituðu listamenn sér innblásturs og áhrifa hvaðanæva að og blönduðu hinum ýmsu stefnum saman. Þessi fjölbreytni á sýningunni gefur henni meira líf og maður fær betri hugmynd um hvað var í gangi á þessum tíma. Ekki einungis var fjölbreytni í straumum heldur líka í tækni og aðferð og sjá má að listamenn þessa tíma voru óhræddir við að prófa nýjar, áður óreyndar, aðferðir. Á sýningunni má t.d. bæði sjá tónverk, skúlptúra, málverk, grafík og fleira.


Pólitískt umhverfi þessa tíma skín í gegn í mörgum verkunum og greinilegt er að þessir listamenn sem þarna eru með verk hafa verið að reyna að storka við gömlum gildum og hugmyndum. Þó ekki einungis stjórnmálalega séð, heldur að sjálfsögðu myndlistarlega líka. Hugmyndin um að "sá sem hefur eitthvað fram að færa, á að fá tækifæri til þess" er greinileg. 


Sýningin er ótrúlega áhrifamikil og veitir manni mikinn innblástur. Það er frábært að fá innsýn inn í þennan heim, þessa tíma, og fá nasaþefinn af því hvað var í gangi í íslenskri myndlist þessa tíma. Annað mjög áhugavert við sýninguna er að ekki endilega voru þekktustu verk listamannana valin, heldur frekar þau sem túlkuðu betur hvað var í gangi þarna. Frábær sýning í alla staði, og leiðsögn Jóns Proppé skemmdi svo sannarlega ekki fyrir.


/lúna.

No comments:

Post a Comment